Starfsemi Austurseturs:

Upplýsing og fræðsla, einkum um samfélag, náttúru og menningarmál, en auk þess líka annað það, sem er almennt áhugavert á Íslandi, Austurlandi og alþjóðavettvangi.

Rannsóknir á samfélagi, náttúru og menningarmálum og þróun þessara mála í staðbundnu og alþjóðlegu samhengi á tímum kreppu og stöðnunar. Athyglinni er m.a. beint að byggða- og atvinnuþróun á Íslandi, einkum með í huga rannsóknir á afleiðingum þeirra samfélags- og skipulagsbreytinga einstakra svæða, sem nú eiga sér stað, fyrir afkomu og líðan íbúanna. Áherslu er lögð á raunhæfar rannsóknir, úttektir og fræðilega ráðgjöf um forsendur sjálfbærrar atvinnu- og byggðaþróunar, verndar náttúru- og menningarverðmæta, auk aðgerða til að styrkja þekkingarsamfélagið og uppbyggingu þess.

Miðlun þekkingar almennt og niðurstaðna rannsókna.