Heimasíða Austurseturs hýsti áður Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Austurlandi. Fræðasetrið, sem var lagt niður í júlí 2010, var til heimilis að Vísindagarðinum á Egilsstöðum, Tjarnarbraut 39a, 700 Egilsstöðum.
Enda þótt fyrrnefnt setur sé horfið af sjónarsviðinu, eru enn í fullu gildi ástæðurnar fyrir því, að fræðasetri á háskólastigi var upphaflega komið á stofn á Austurlandi (sjá nánar í Starfsemi: Háskólanám á Austurlandi). Mikill áhugi hefur verið á fræðum og menntun á svæðinu frá alda öðli, og hefur margskoar fræðastarfsemi lengi verið til staðar, borin uppi af rótgróinni, íslenskri menningu. Því mun þessi síða verða til boðs á netinu enn um hríð, og mun hún halda áfram að þróast með aðstoð áhugafólks um þessa starfsemi og stofnana, sem vilja koma upplýsingum um starfsemi sína á framfæri.
Valdimar Briem, sem áður var forstöðumaður fræðaseturs Háskóla Íslands á Austurlandi, er umsjónarmaður þessarar heimasíðu.